sko
Ég hef það stundum á tilfinningunni að ég sé að blogga svo oft og mikið að það nenni enginn að lesa þetta að jafnaði, eða gefi sé rekki tíma til þess. En það er svo sem allt í lagi. Fyrir mig alla vega, verra fyrir ykkur sem þá missið af viskunni:
Verður samt ekki löng færsla í dag, ætlaði bara rétt að henda inn stjörnuspánni minni af mbl.is
Ljón: Þú er tilfinningalega auðsæranlegri en fólk álítur. Kannski er það af því að þú virðist harður, alltaf með allt á hreinu og fátt fer í taugarnar á þér. Sýndu fólki mjúku hliðina á þér - hún er líka heillandi.
Ekki skal ég dæma um hvort það sé eitthvað til í þessu en ég hnaut svoldið um síðustu setninguna. Sýna fólki mjúku hliðina, ekki nema það þó, er ekki í lagi með fólk. Maður er búinn að leggja sig allan fram um það dag eftir dag og ár eftir ár að reyna að verða töffari (má kannski deila um árangurinn) og fela mjúku hliðarnar og bara glætan að maður fari eitthvað að hætta því viljandi. Nei, ekkert tilfinningakjaftæði hér takk og mjúka hliðin verður bæld eins og frekast er unnt hér eftir sem hingað til.
kveðja úr sólinni

Efnisorð: stjörnumerki, sveitalubbafréttir