þriðjudagur, mars 20, 2007

ykkur til fróðleiks og skemmtunar...

....þá eru þetta og þetta tvær góðar ástæður fyrir því að ég ætla ekki að ná mér í danskan kall. N.b. þetta er alla vega þriðji Daninn sem stútar kellingunni sinniá Á ÞESSU ÁRI. Hættulegur þjóðflokkur sem sagt. Kannski rétt að taka það fram svona í framhaldi af þessu að ég er svo sem ekkert á leiðinni að ná mér í kall yfirleitt, er bara alltof löt manneskja til að nenna að standa í svoleiðis veseni ;o)

Og enn úr fréttum en þetta eru klárlega sorgartíðindi dagsins. Hvernig geta þeir hjá ruv gert mér, einhverjum tryggasta hlustanda/áhorfanda sem um getur, þetta. Maríanna ég verð fastagestur hjá þér annan hvern sunnudagsmorgnum (og stundum aðfaranætur sunnudaga) á næsta ári.

Uppáhalds í dag er tréð í garðinum í næsta húsi. Veit ekki hvað það heitir en það er með breiða krónu sem er alsett af litlum og fallegum hvítum blómum þó að tréð sé enn ekkert farið að laufgast. Alveg hrikalega flott. Kannski kominn tími til að ég fyndi eitthvað fleira jákvætt við Danmörku en Carlsberginn:)

Ætli ég láti þetta ekki duga í bili. Var að hugsa um að láta fylgja með lista yfir hluti sem mig langar í eða langar að gera (ekki það að það komi ykkur nokkuð við) en það hefði orðið svo langur listi að ég læt það eiga sig, enda alveg tilgangslaust að velta sér upp úr því.
Fariði vel með ykkur og passið ykkur á Dönunum:)

kv
Óskin í Köben með óskalistann sinn

Efnisorð: ,

5 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Hverjum er ekki sama hvar formúlan er sýnd!!Ása

miðvikudagur, mars 21, 2007 10:41:00 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Formúlan er nú reyndar ekki nærri eins skemmtileg eftir að Mikki okkar Schumacher hætti, þannig að kannski á maður ekki eftir að sakna hennar svo mikið

fimmtudagur, mars 22, 2007 4:56:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Þú ert ávallt velkomin hvenær sem er Hallfríður mín, en ég verð að hryggja þig með því að ég hef barasta ekki sýn :( En kannski það sé hægt að finna þennan fjanda á einhverri af þessum útlensku stöðvum- ég þori ekki að segja til um það! Þú verður þá bara að horfa á pro bull riding með mér í staðinn og dást að fallegu nautunum...og karlmönnunum ;)

fimmtudagur, mars 22, 2007 5:41:00 e.h.  
Blogger Hallfríður Ósk said...

Ég hélt að Sýn næðist alls staðar þar sem stöð 2 næst en þetta á víst að verða í opinni dagskrá á Sýn eða svo segja þeir alla vega núna. Þetta hlýtur líka að vera á einhverri af útlensku stöðvunum Annars hljómar pro bull riding nokkuð vel þó það megi kannski deila um dýraverndunarsjónarmiðin í því. Kemur allt í ljós, er nú ár í þetta enn. Og Sigríður það kemur maður i manns stað og Ferrari er nú kominn með nokkuð skemmtilegan ökumann í stað Mikka

fimmtudagur, mars 22, 2007 5:58:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Nú, ef það á að sýna þetta í opinni dagskrá þá er þetta nú lítið mál :) Ég er semsagt ekki með áskrift að Sýn, en næ henni að sjálfsögðu alveg. Málið leyst :)

föstudagur, mars 23, 2007 10:50:00 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home