Í framhaldi af síðustu færslu
þá er rétt að taka það fram að gæðastýringarálag er nú þegar greitt út á vöðvaflokk O, svo gáfulegt sem það nú er.
Ályktunarparturinn sem ég er n.b. ennþá reið yfir hljóðar sem sagt upp á að fundurin leggi það til að gæðastýringarregelugerðinni verði breytt þannig að greitt verði út á alla flokka nema vöðvaflokk P og fituflokk 5, sem sagt, greitt verði út á 99,4 % framleiðslunnar ef ég hef reiknað rétt. Ég sem hélt að þetta gæðastýringarkerfi ætti að hvetja bóndann að framleiða betri vöru í samræmi við markaðinn á hverjum tíma, leggja sig meira fram við framleiðsluna og að sjálfsögðu að vera í samræmi við það ræktunarmarkmið sem unnið er eftir á hverjum tíma. Ef þetta kemst í gegn verður það svo sem í samræmi við sumt annað sem setja má út á í framkvæmdinni á þessu annars að mörgu leiti ágæta kerfi
Ég leit að gamni mínu yfir ályktanadrögin sem voru send inn á fundinn og sá þar, eins og mig grunaði reyndar, að það voru sveitungar mínir í félagi sauðfjárbænda í Vestur Húnavatnssýslu sem sendu inn ályktun um að fara að greiða út á fituflokk fjóra. Skapið batnaði nú svo sem lítið við það að fá þann grun staðfestan. Að vísu mega þeir eiga það að ályktunin hjá þeim hljóðaði aðeins upp á að bæta E4 og U4 við og þá á þeirri forsendu að það væri jú ekki síðri framleiðsla en t.d. O1 eða O3+ sem ég get prýðilega vel samþykkt. Hins vegar stend ég föst á því að rétta leiðin til að losna við þetta misræmi hefði verið að henda O flokknum algjörlega út úr gæðastýringargreiðslunum og jafnframt halda fituflokk fjórum utan við sama hvaða vöðvaflokk hann fylgir.
En í staðinn var farið nánast eins langt og hægt var í hina áttina og samþykkt að leggja það til að skrokkar sem flokkast í O4 verði skilgreindir sem gæðaframleiðsla og framleiðandinn eigi skilið að fá greitt sérstaklega út á þá.
Ályktunin eins og hún var send inn á fundinn hefði þó verið skömminni skárri þó hún hefði ekki verið góð.
En nóg um það. Ég var ekki fulltrúi og þýðir því lítið fyrir mig að vera að þenja mig neitt
Bestu kveðjur frá Sveitalubbanum með eyrnabólgu í Köben (var alveg búin að gleyma hvað það er óþægilegt, eyrnabörn eiga ALLTAF alla mína samúð)

Efnisorð: landbúnaður

4 Comments:
Hmmmm....veit varla hvort ég eigi að þora að kommenta á þetta...en...mér finnst að það eigi alls ekki að vera að umbuna þeim sem framleiða fitu. Þori ekki að segja meir, gæti komið mér í rifrildi, og ég þoli svo illa ef einhver er ósammála mér ;) Reyndar verð ég að segja að ég vil fá meira samræmi í matið á milli húsanna, það er alls ekki nógu gott að mínu mati. Nú er ég hætt :)
Nákvæmlega Maríanna, alla vega engin hætta á að við lendum í rifrildi út af þessu:)
Ég verð að vera ósammála ykkur gæðastýringin er skylgreind sem ákveðið ferli sem jú! öll lömb fara í gegnum, sama hvort þau fara í O4 eða E2. Það sem þú ert að tala um er hinsvegar ræktunnarlegs eðlis og væri því mikið eðlilegra að það yrði tekið á þessu á ræktunnarlegum grundvelli, hjá ráðgjafaþjónustunni. Einnig væri eðlilegra að þessum flokkum væri mismunað meira hjá sláturleyfishöfum í gegnum verlagningu til bænda.
Gæðastýringin er ekki eitthvert ákvðið ræktunnrmarkmið heldur ferli sem allt fé í hjörðinni fer í gegnum, einnig er kerfið upphaflega hugsað til að útdeila ríkisstyrk til bænda!!. Ekki koma ræktuninni hjá þeim á rétta braut. Hinsvegar er ég sammála því ekki á að hvetja bændur til að að slaka á gæða kröfum í ræktuninni undir neinum kringumstæðum.
kærkveðja Helgi Haukur
Gott og vel Helgi Haukur, skil svo sem alveg hvað þú ert að fara og nokkuð til í því. Hins vegar þá segir í Samningi um framleiðslu sauðfjárafurða að bændur í gæðastýringu fái greitt álag á ákveðna gæðaflokka kjöts. Þetta túlka ég sem svo að gæðastýringarákvæðið snúist ekki bara um framleiðsluferlið heldur líka að hvetja bændur til að framleiða betri skrokka hvað kjötgæði varðar - rækta, þó það sé engin skylduskráning af hálfu bónda eða beint eftirlit af hálfu bændasamtakanna eða landbúnaðarstofnunarmeð þeim parti. Þess þarf heldur ekki því að upplýsingarnar koma í gegnum kjötmatið úr sláturhúsunum. Jafnvel þó það það sé ekki nánar skilgreint í samningnum þá hlýtur að teljast eðlilegt að þessi mismunun eftir gæðaflokkum sé í samræmi við ræktunarmarkmið og kröfur neytenda á hverjum tíma.
Ef gæðastýringarkerfið ætti bara að taka til framleiðsluferlisins væri þetta ákvæði ekki inni og það væri greitt út á allt kjöt hjá öllum sem uppfylla skilyrði úm skráningu, fóðrun, landnýtingu o.s.frv. - líka út á fituflokk 5 og vöðvaflokk P þó að flestir geti verið sammála um að sú framleiðsla teljist ekki af miklum gæðum, beri ekki vott um góða búskaparhætti og eigi helst ekki að sjást.
Svona túlka ég þetta alla vega og tel því að það sé í raun inni í gæðastýringarákvæði samningsins ákvæði/kröfur um ræktun og kjötgæði og er því enn á þeirri skoðun að ályktunin fyrrnefnda sé vitlaus og andstæð markmiði samningsins.
Er samt líka sammála því að það mætti mismuna þessum flokkum meira í sláturhúsi og að sjálfsögðu á áfram að vinna að þessu af hálfu ráðgjafaþjónustunnar. Hins vegar er það bara þannig að það er krónufjöldinn sem fæst fyrir hvert kíló sem knýr áfram ákvarðanatöku og áherslu bóndans - skiljanlega svo sem - og því er takmarkað hvaða áhrif ráðunautaþjónustan getur haft ef mismununin í verðlagningu, hvort sem er frá ríki eða sláturhúsi, fylgir ekki með.
Bestu kveðjur í sauðburðinn
Hallfríður
Skrifa ummæli
<< Home