þriðjudagur, apríl 24, 2007

ja nú verðið þið hissa

Það hvarflar öðru hvoru að mér að það gæti verið gott að gerast kaþólsk. Hljómar kannski einkennilega þar sem ég er svo sem ekkert sérstaklega kirkjurækin en fyrir þessu eru ástæður sem ég nenni ekki að skilgreina fyrir sjálfri mér og hvað þá öðrum.
Þegar ég sé fréttir á borð við þessa og reyndar ýmsar aðrar sem hafa komið frá hæstráðendum kaþólsku kirkjunnar í gegnum tíðina skipti ég hins vegar all snarlega um skoðun og kem því væntanlega til með að halda mig við íslensku þjóðkirkjuna um ókomna framtíð.
Sorglegt þegar allt það góða sem Kristnin boðar og stendur fyrir og er grundvöllurinn fyrir siðfræðinni sem samfélagið okkar byggir á er látið víkja fyrir þröngsýni og afturhaldssemi.
Reyndar er ég samt ein hinna þröngsýnu og afturhaldssömu í alla vega einu máli þó að það sé ekki ástæðan fyrir þessum vangaveltum mínum.

Sjálfsagt er þetta of ruglningslega orðað til að nokkur botni í þessu en ég hef það mér til varnar að klukkan er að verða eitt að nóttu til og ég er búin að lifa á verkjatöflum og bjór í þrjá daga (aðallega verkjatöflum samt). Pælingin á bak við færsluna er samt til staðar burtséð frá verkjalyfjum og bjór þannig að þetta er ekki algjört óráðshjal.

veit ekki alveg hvort ég á að þora að leifa komment á þetta...

góða nótt
Sveitalubbinn, dópaður, syfjaður, kvefaður og með hálsbólgu og almennan aumingjaskap

Efnisorð:

5 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Þú þarft nú ekki endilega að tilheyra neinu trúfélagi. Það hefur nú ekki háð mér neitt að standa utan þeirra
Kirkjunar menn eru því miður of margir eins og stjórnmálamenn. Fullir af lofti og ekkert að marka það sem þeir segja
kveðja
Gunnfíður

miðvikudagur, apríl 25, 2007 9:47:00 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Í einhverri bók sem ég var að lesa um daginn var vitnað í einhvern snilling sem ég er búinn að gleyma hver er
"prestar eru eins og píkulappir, gefa alltaf loforð um eitthvað betra ofar"

Ég held ég hafi ekki heyrt betri lýsingu á prestastéttinni.

miðvikudagur, apríl 25, 2007 12:14:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

mamamamamaður er bara orðlaus.
Vonandi fer þér að batna Hallfríður mín ;)Þessir tveir mánuðir verða flognir hjá áður en þú veist af.

miðvikudagur, apríl 25, 2007 2:03:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég fatta nú ekki alveg hvers vegna er betra að vera kaþólskur, gæti ég fengið útskýringu?

miðvikudagur, apríl 25, 2007 8:30:00 e.h.  
Blogger Hallfríður Ósk said...

Æ, ætla svo sem ekki að fara að útlista nákvæmlega hvað ég er að pæla í þessum efnum, veit það kannski ekki nógu vel sjálf. Alla vega þá kemur einmitt ekki til greina að standa utan trúfélaga af minni hálfu. Finnst kirkjan mjög mikilvæg stofnun en ég ætla ekki að taka afstöðu til hvort einhver kirkja sé betri eða verri en önnur enda verður hver að meta það fyrir sig, misjafnt hvað hentar fólki í þessu eins og öllu öðru.
Þetta er samt voða framsóknarlegt svar hjá mér eitthvað en verður bara að hafa það í þetta sinn:)

miðvikudagur, apríl 25, 2007 9:09:00 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home