ja nú verðið þið hissa
Það hvarflar öðru hvoru að mér að það gæti verið gott að gerast kaþólsk. Hljómar kannski einkennilega þar sem ég er svo sem ekkert sérstaklega kirkjurækin en fyrir þessu eru ástæður sem ég nenni ekki að skilgreina fyrir sjálfri mér og hvað þá öðrum.
Þegar ég sé fréttir á borð við þessa og reyndar ýmsar aðrar sem hafa komið frá hæstráðendum kaþólsku kirkjunnar í gegnum tíðina skipti ég hins vegar all snarlega um skoðun og kem því væntanlega til með að halda mig við íslensku þjóðkirkjuna um ókomna framtíð.
Sorglegt þegar allt það góða sem Kristnin boðar og stendur fyrir og er grundvöllurinn fyrir siðfræðinni sem samfélagið okkar byggir á er látið víkja fyrir þröngsýni og afturhaldssemi.
Reyndar er ég samt ein hinna þröngsýnu og afturhaldssömu í alla vega einu máli þó að það sé ekki ástæðan fyrir þessum vangaveltum mínum.
Sjálfsagt er þetta of ruglningslega orðað til að nokkur botni í þessu en ég hef það mér til varnar að klukkan er að verða eitt að nóttu til og ég er búin að lifa á verkjatöflum og bjór í þrjá daga (aðallega verkjatöflum samt). Pælingin á bak við færsluna er samt til staðar burtséð frá verkjalyfjum og bjór þannig að þetta er ekki algjört óráðshjal.
veit ekki alveg hvort ég á að þora að leifa komment á þetta...
góða nótt
Sveitalubbinn, dópaður, syfjaður, kvefaður og með hálsbólgu og almennan aumingjaskap

Efnisorð: trú