mánudagur, maí 07, 2007

Þessi tækni...

... nú á tímum getur verið varasöm. Alls staðar leynist myndatökubúnaður, gjarnan dulbúinn sem tæki til einhverra allt annarra nota þannig að ómögulegt er að forðast hann. Með einni lítilli fingurhreyfingu getur afraksturinn svo verið kominn landa- og heimsálfa á milli á sekúndubroti. Maður er hvergi öruggur.....


Myndin sem fylgir hér með var reyndar tekin fyrir töluvert mörgum sekúndubrotum síðan og er bara búin að ferðast milli landa en ekki heimsálfa. Hún var hins vegar vissulega tekin á stafræna myndavél, dulbúna sem Nokia 5140i farsíma, og því ómögulegt fyrir fórnarlambið að vera viðbúið myndatökunni eða forða sér.

Að dagurinn í dag er valinn til birtingar á sér hins vegar einkum þá skýringu að fórnarlambið fagnar afmælisdegi sínum í dag, vonandi þó í betra veðri en var á fæðingardeginum sjálfum fyrir 64 árum síðan. Önnur líkleg skýring er sú að ritarinn nennir ekki að lesa sameindaerfðafræði og finnur sér því flest annað til dundurs.






Myndin var tekin í Kaupmannahöfn fyrir tæpum tveimur mánuðum síðan og ég reikna fastlega með því að flest ykkar kannist við manninn og þekkið hans skoðanir á ýmsum málefnum. Þrátt fyrir takmörkuð myndgæði úr Nokia 5140i má sjá, ef vel er að gáð, að í glasinu er gullinn vökvi og á glasið er stimplað velþekkt vörumerki, grænt að lit...
Já, það getur greinilega ýmislegt gerst þegar fólk er sloppið út fyrir sjón(auka)svið nágrannanna í Víðidalnum:)
En um þessa mynd verður ekki rætt nánar. What happens in Köben stays in Köben (eða svoleiðis, hnjehnjehnjehnje).


Fórnarlambið fær hins vegar heimsins mestu og bestu afmæliskveðjur og verður, sem sárabót fyrir myndbirtinguna, knúsaður vel og lengi eftir 47 daga eða svo (ekki það að neinn sé að telja svo sem:)


Annars bara allt meinhægt úr Kaupinhafn. Búin að kjósa og atkvæðið lagt af stað í Borgarfjörðinn svo það verður ekki aftur snúið með það og vonandi hætti ég þá að fá helvítis samfylkingarbréfin sem íslendingafélagið er að miðla um póstlistana með reglulegu millibili. Kólnandi veðurfar (eiginlega frekar sátt með það) með rigningu úr heiðskíru lofti, a la Ísland, og manndrápshagléli. Heppin ég að vera ekki úti að skokka þegar sú demba kom... Verst við þetta veðurfar er að ég er skíthrædd um að því eigi eftir að fylgja þrumur og eldingar í kvöld en vonum bara það besta.


Nóg í bili, ætla að snúa mér að lestrinum þar til um níuleitið í kvöld þegar ég fer að gæða mér á íslenska heimareykta hangikjetinu mínu meðan ég horfi á fréttirnar. Vonandi verður eitthvað annað en kosningaumfjöllun í þeim, nenni ekki meiru af svoleiðis. Kannski maður hæti bara að horfa á fréttirnar, neeeii, ekki alveg að sjá það gerast.
Mætti að mínu áliti alveg taka upp frönsku aðferðina með að gefa kjósendum frið frá skoðanakönnunum og áróðri einhvern ákveðinn tíma fyrir kosningar og leyfa þeim að gera upp hug sinn í friði. Bara hafa þennan tíma töluvert lengri en sólarhringinn eina sem Frakkarnir fá, ein eða tvær vikur væri hæfilegur tími og jafnframt ætti ekki að láta umfjöllunina og kannanirnar byrja fyrr en frestur til að skila inn listum er runninn út. Fólk á að kjósa út frá mönnum og málefnum framboðanna en ekki út frá líkum á hinu eða þessu stjórnarsamstarfinu miðað við hina eða þessa niðurstöðu.

Sveitalubbinn biður að heilsa í bili

(ps. ef þið sjáið prentvillur/stafsetningarvillur í þessu ekkert vera að benda á það, er búin að marglesa þennan teksta yfir og finn alltaf einhverjar nýjar villur og núna er ég hætt)

Efnisorð: , ,

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Áróðurspappírar...hmhmhm...ef það væru bara þeir (sem rata beina leið í ruslakörfuna eða endurvinnslustaflann) þegar ákveðin framboð eru farin að hringja í mann þá er manni nú öllum lokið...... Þó að makinn sé skráður í flokk sem hann álpaðist til að ganga til liðs við á níunda áratug síðustu aldar þá er manni bara algjörlega nóg boðið.....og ekki er ég skráð í umræddan flokk en ég er spurð "hvort ég hugsi ekki vel til þeirra á laugardaginn?" ég hugsa bara ekkert til þeirra á laugardaginn!.....púff, varð bara að koma þessu frá mér, sorry Hallfríður. (til að koma í veg fyrir misskilning þá voru þetta ekki þínir menn)
Ég er sammála þér varðandi skoðanakannanir, og pælingar um væntanlegt stjórnarsamstarf, málefnin eiga að ráða.
Þetta er nú farið að verða fulllangt komment en karlinn er ekki heima og enginn til að röfla við.....

mánudagur, maí 07, 2007 10:02:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Maður á sko alls ekki að vera að spögúlera í prentvillum og þessháttar. Mér finnst miklu flottara að hafa þær með það gefur textanum svona meira spontant yfirbragð. Eins og þetta hafi allt verið skirfað af gríðarlegri andagift og að orðin hafi bara bókstaflega ekki getað beðið eftir því að komast á blað. Eins og lesendur minnar síðu hafa sjálfsagt tekið eftir þá nota ég þennan stíl mjög mikið
Kveðja af eyrinni
GEH

mánudagur, maí 07, 2007 10:21:00 e.h.  
Blogger Hallfríður Ósk said...

Hefði svo sem alveg getað trúað því Sigga að þetta hefðu verið "mínir menn". þeir voru alla vega fyrir fjórum árum voða skotnir eitthvað í þessari maður á mann aðferð sem þeir kalla, þ.e. að hringja í sem flest fólk og minna á sig. Á reyndar frekar bágt með að trúa að þetta virki á nokkurn mann, ég yrði alla vega bara geðvond yfir svona upphringingum, hugsa að þetta sé vísasta leiðin til að fá mig til að kjósa ekki eitthvað. Ég var sem betur fer á þeim tíma löglega afsökuð við að skrifa bs ritgerð og slapp því við að taka þátt í vitleysunni.
Hvað prentvillurnar varðar Gunnfríður þá hreinlega HATA ég svoleiðis (sérstaklega hjá sjálfri mér). Get eytt góðum tíma í að leiðrétta sms texta ef ég sé villur í þeim

þriðjudagur, maí 08, 2007 7:02:00 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home