þriðjudagur, maí 22, 2007

jafnrétti hvað

Hvaða andskotans jafnrétti er í því að hafa jafna kynjaskiptingu í ráðherraembætti þegar karlar eru fleiri á þingi. Ég er ekki mjög klár í líkindareikningi en sýnist nokkuð augljóst að það er verið að taka konur fram yfir karla eingöngu á grundvelli kynferðis, konur hafi þá hærri líkur á að verða ráðherra og það getur að mínu mati aldrei talist jafnrétti. Þetta er dæmi um kvenréttindastefnu eða öðru nafni kvenrembu sem er alls ekki jákvæð.
Óþolandi þessi afbökun á jafnréttishugtakinu sem sést svo ótrúlega víða. Það er eins og fólk viti ekki lengur hvað orðið "jafn" þýðir.

Annars hafði ég lúmskt gaman að því að til skamms tíma í dag birtist myndin og videoið sem fylgir fréttinni í linknum hér að ofan einnig með frétt um ofsaakstur einhvers staðar á Reykjavíkursvæðinu. Sjálfsagt hefur það ekki verið ISG sem var með svona þungan bensínfót, alla vega sýnist mér vera búið að breyta þessu núna en mér fannst þetta samt skemmtilegt.

Ég mátti bara til með að hvæsa aðeins yfir þessu kellingakjaftæði hérna og nú er það búið og ég hef enga afsökun lengur fyrir að fara að ráðast á þvottafjallið mitt. Held ég sakni þvottavélarinnar minnar meira en allra annarra að heiman (eða svona næstum því alla vega), en nú eru ekki eftir nema 2-3 skipti eftir þetta og svo get ég farið að í þvo þegar mér sýnist , án þess að fara að heiman og án þess að borga fyrir það fúlgur fjár í hvert skipti.

Sumarkveðja
Sveitalubbinn - á heimleið eftir nákvæmlega einn mánuð:)

Efnisorð:

5 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Hallfríður - það er fullkomlega óþolandi hvað er alltaf gengið framhjá konum þegar um völd er að ræða - ekki að það eigi bara að skipa konu vegna þess að hún er kona - alls ekki - en konur eru JAFNINGAR karla og eiga þess vegna að vera jafnt metnar þegar skipa á í valdastöður - karlar og þá sérstaklega í vissum flokkum eru svo FREKIR að þeir vilja helst vallta yfir konur og ekki láta þær fá nein völd - hvernig er með Guðfinnu Bj. fyrrverandi rektor - hámenntuð og örugglega mjög klár - hversvegna er gengið framhjá henni - algjörlega ÓÞOLANDI - FULLKOMLEGA.
Á.Ó.

miðvikudagur, maí 23, 2007 9:30:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hvernig lýst þér nú á nýja landbúnaðarráðherrann Hallfríður?

fimmtudagur, maí 24, 2007 10:01:00 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

þessar rauðsokku kerlingar vilja ekki jafnrétti þær vilja forréttindi og hana nú!

fimmtudagur, maí 24, 2007 9:34:00 e.h.  
Blogger Hallfríður Ósk said...

ja þar hvein í:)
Ása mín ég sagði hvergi að það væri eðlilegt að taka karla fram yfir jafn hæfar eða hæfari konur. Mér finnst hins vegar alveg jafn vitlaust að taka konur fram yfir karla bara af því að þær eru konur. Málið er í þessu tilfelli að kerlingartuskan var búin að gefa það út að það yrðu jafnmargir kven- og karlráðherrar löngu áður en hún vissi hvaða ráðuneyti samfylkingin fengi, meira að segja áður en hún vissi hverjir næðu á þing og hvort hún kæmist í stjórn. Þar með var hún búin að segja að hún ætlaði að láta kynferði ráða burtséð frá hæfni. Og með þessu er ég ekki að segja að konurnar sem fengu ráðherraembætti séu verri kostur en karlarnir, held reyndar að þær hafi - að ISG sjálfri undanskilinni, verið skömminni skárri kostur en karlarnir sem ekki urðu svo heppnir en málið er að það gat hún ekki vitað á þeim tímapunkti þegar hún gaf þessar yfirlýsingar og er þannig að hvetja til mismununar á grundvelli kynferðis.
Maríanna, verðum við ekki bara að gefa karlinum séns. Veit ekkert hvort hann verður til nokkurs gagns svo sem en varla rétt að útiloka það að óreyndu. Er fyrst og fremst bara dauðfegin og þakklát fyrir að Samfylkingin fékk ekki þetta ráðuneyti.

sunnudagur, maí 27, 2007 4:31:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Konur eru konum verstar. Áfram Ingibjörg!!!!!!

fimmtudagur, maí 31, 2007 4:11:00 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home