föstudagur, maí 04, 2007

Heiðursborgarinn

í Víðidalstungu þessa dagana er (og Þórunn, þessi færsla er bara um sauðfé þannig að þú getur hætt núna) ...

...ær númer 01-571 sem af einhverjum undarlegum ástæðum hefur aldrei fengið nafn þrátt fyrir að eiga það svo sannarlega skilið.
Þetta er sem sagt sex vetra Húnsdóttir (frá Hesti) sem verður í haust ef öll lömbin skila sér búin að skila okkur einum 18 lömbum til nytja - og á vonandi eitt-tvö ár eftir enn.
Hún var tvílembd sem gemlingur hefur ef mig misminnir ekki því meira (er ekki með bókhaldið með mér hérna úti) verið þrílembd síðan, þar til nú þegar það komu fjögur. Alltaf hefur hún gengið með öll lömbin og skilað þeim heilum og prýðilega þroskuðum að hausti. Í fyrra villtist reyndar eitt undan snemma sumars en það kom ekki að sök þar sem það var prýðilega slátrunarhæft að hausti. Eitt árið reiknaðist okkur til að ef öllum lömbunum hefði verið slátrað og öll verið með sömu kjötprósentu og það sem var slátrað hefðu afurðirnar verið ríflega 50 kílóa fall og það er nú bara býsna gott á okkar mælikvarða alla vega. Ekki þarf heldur að kvarta yfir flokkuninni, yfirleitt R eða U hjá þeim fáu lömbum sem er slátrað og hin mælast alveg þokkalega. Eins og gefur að skilja er hún að sjálfsögðu alltaf sædd ef tækifæri gefst og við vorum einmitt svo heppin þetta árið að hún var að ganga á sæðingadegi og eru fjórlembingarnir undan Ljúf frá Ytri Skógum. Eitt lambið var reyndar vanið undan og hún gengur því með þrjú eins og hún er vön.
Hún virðist ætla að skila frjóseminni prýðilega til dætranna (hef þó ekki gert nákvæma úttekt á því enn) og svo verður bara spennandi að sjá hvernig sonardæturnar standa sig.
Svo er þetta líka lang lang langfallegasta kindin í húsunu. Stór og langvaxin, reyndar ekki sérstaklega lágfætt og alveg sérlega vel og fallega hyrnt. Takið svo sérstaklega eftir "ertu ekki örugglega að koma til að gefa mér nammi" svipnum á henni á myndinni.(held við séum andlega skyldar) hún veit alveg að hún er best og fær það sem hún vill þegar hún vill.
Þegar þær verða allar farnar að skila afurðamagni á borð við þessa verð ég sátt sérstaklega ef flokkunin yrði örlítið betri en hún gefur. Held samt að maður yrði kannski nett geðveikur í sauðburði með 300 fjórlembur og tæplega 90 tvílembda gemlinga....
En, best að fara að einbeita sér að líftækninni, þarf að læra hvernig ég get nýtt tæknina til að flýta fyrir því að ná þessu markmiði...
Kveðja
Sveitalubbinn, staðsettur í Kaupmannahöfn líkamlega séð en þið getið líklega giskað á hvar hugurinn er
P.s. Helgi ég er búin að svara kommentinu þínu hérna fyrir neðan. Ákvað að svara bara í kommenti, nennti ekki að spandera einni færslu enn á þessa vitlausu ályktun

Efnisorð: , ,

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Ætti hún ekki að vera heiðurssveitungi frekar en heiðursborgari?

föstudagur, maí 04, 2007 8:34:00 e.h.  
Blogger Hallfríður Ósk said...

Orðið borgari vísar að mínu viti ekki í búsetu. Prófaðu að fletta þvi upp í orðabók og ég hef enga trú á að þar sé það skilgreint sem fólk sem býr í borg. Við erum öll borgarar í okkar(borgaralega ef ég man skilgreininguna rétt) þjóðfélagi eða samfélagi og 571 því einn borgarinn í samfélagi kinda, hrossa og manna í Víðidalstungu.

föstudagur, maí 04, 2007 11:29:00 e.h.  
Blogger Maríanna said...

Jesús...rökræðurnar hjá ykkur systrum! ;)

þriðjudagur, maí 08, 2007 8:15:00 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home