Það tilkynnist hér með....
...að sökum afleitrar lausafjárstöðu er tuttuguogtíu ára afmælinu mínu, sem að sjálfsögðu var meiningin að halda upp á með pompi og pragt og ærlegu fylleríi, frestað um óákveðinn tíma. Líklega að minnsta kosti ár eða svo.
Í stað þess að undirbúa afmælisteiti held ég til fjalla í góðum hópi manna og hesta og hyggst ekki koma til byggða á ný fyrr en ég verð nokkuð örugglega skriðin inn á næsta aldursár.
Ferðinni er heitið um víðfeðm heiðalönd, stórgrýttar eyðimerkur, hverasvæði, ólgandi jökulár, grasi vaxna dali og fjallaskörð.
Kannski kemur ferðasaga, kannski ekki. Hún verður alla vega alveg örugglega ekki löng, það verða næg verkefni sem bíða mín þegar flakkinu lýkur - og orðið alveg skuggalega stutt í göngur.
Nóg í bili. Óbyggðirnar kalla sveitalubbann sem kveður að sinni