laugardagur, apríl 28, 2007

algjör snilld...

Ég veit ekki hvað þið sem skoðið síðuna mina gerið mikið af því að kíkja á síðurnar sem ég er með hlekki á hérna til hliðar en núna skuluð þið öll sömul alveg endilega kíkja á síðuna hennar Ingveldar.
Þetta er alveg hreint ótrúlega fyndið og spurning hvort þarna sé komið nýtt sóknarfæri fyrir íslenska sauðfjárbændur, alla vega þá sem eru með kollótt fé

Kveðja
Sveitalubbinn í hláturskasti:)

Efnisorð: , ,

fimmtudagur, apríl 26, 2007

Í framhaldi af síðustu færslu

þá er rétt að taka það fram að gæðastýringarálag er nú þegar greitt út á vöðvaflokk O, svo gáfulegt sem það nú er.
Ályktunarparturinn sem ég er n.b. ennþá reið yfir hljóðar sem sagt upp á að fundurin leggi það til að gæðastýringarregelugerðinni verði breytt þannig að greitt verði út á alla flokka nema vöðvaflokk P og fituflokk 5, sem sagt, greitt verði út á 99,4 % framleiðslunnar ef ég hef reiknað rétt. Ég sem hélt að þetta gæðastýringarkerfi ætti að hvetja bóndann að framleiða betri vöru í samræmi við markaðinn á hverjum tíma, leggja sig meira fram við framleiðsluna og að sjálfsögðu að vera í samræmi við það ræktunarmarkmið sem unnið er eftir á hverjum tíma. Ef þetta kemst í gegn verður það svo sem í samræmi við sumt annað sem setja má út á í framkvæmdinni á þessu annars að mörgu leiti ágæta kerfi

Ég leit að gamni mínu yfir ályktanadrögin sem voru send inn á fundinn og sá þar, eins og mig grunaði reyndar, að það voru sveitungar mínir í félagi sauðfjárbænda í Vestur Húnavatnssýslu sem sendu inn ályktun um að fara að greiða út á fituflokk fjóra. Skapið batnaði nú svo sem lítið við það að fá þann grun staðfestan. Að vísu mega þeir eiga það að ályktunin hjá þeim hljóðaði aðeins upp á að bæta E4 og U4 við og þá á þeirri forsendu að það væri jú ekki síðri framleiðsla en t.d. O1 eða O3+ sem ég get prýðilega vel samþykkt. Hins vegar stend ég föst á því að rétta leiðin til að losna við þetta misræmi hefði verið að henda O flokknum algjörlega út úr gæðastýringargreiðslunum og jafnframt halda fituflokk fjórum utan við sama hvaða vöðvaflokk hann fylgir.
En í staðinn var farið nánast eins langt og hægt var í hina áttina og samþykkt að leggja það til að skrokkar sem flokkast í O4 verði skilgreindir sem gæðaframleiðsla og framleiðandinn eigi skilið að fá greitt sérstaklega út á þá.
Ályktunin eins og hún var send inn á fundinn hefði þó verið skömminni skárri þó hún hefði ekki verið góð.

En nóg um það. Ég var ekki fulltrúi og þýðir því lítið fyrir mig að vera að þenja mig neitt

Bestu kveðjur frá Sveitalubbanum með eyrnabólgu í Köben (var alveg búin að gleyma hvað það er óþægilegt, eyrnabörn eiga ALLTAF alla mína samúð)

Efnisorð:

miðvikudagur, apríl 25, 2007

Hmmmm.....

....kannski bara best að ýta kirkju/trúarumræðunni aðeins neðar. Er aldrei gott að vera að tjá sig um eitthvað sem er of óljóst og ómótað í kollinum á manni til að maður geti rætt það skammlaust. Vil líka halda mig við þá stefnu sem ég hef reynt að hafa að leiðarljósi að þegja bara ef ég hef ekkert að segja og ég hef í sjálfu sér ekkert að segja um þessi mál að svo stöddu þó ég hafi eitthvað verið að myndast við það í gær. Alla vega, búið með þessar pælingar í bili, svona opinberlega a.m.k.

Annars er svo sem lítið að segja. Var rétt í þessu að setja inn link á nýju XD síðuna sem var verið að opna bara í gær eða fyrra dag. Er reyndar ekki búin að skoða hana mikið en lítur vel út við fyrstu sýn alla vega. Gaman að skoða myndasyrpuna sem heitir "hin hliðin á landsfundi", fær mann bara til að langa að fara aftur á svoleiðis samkomu. Húnvetningar eiga meira að segja sinn fulltrúa í myndasyrpunni, sá er þó ekki í ræðustól heldur að sinna brýnni erindum:)

Setti líka inn linka á síðurnar hjá Bændablaðinu og Landssamtökum sauðfjárbænda. Var reyndar efins um LS síðuna. Hún er náttúrulega í fyrsta lagi dáldið hrá ennþá sem þarf þó ekki að vera frágangssök þar sem það stendur vonandi til bóta. Nei efinn kom til af því að ég varð svo fjúkandi vond þegar ég sá eina ályktunina sem var samþykkt á aðalfundinum um daginn, eða réttara sagt hluta af einni ályktuninni sem mér finnst bara arfavitlaus og úr öllum takti við ræktunarmarkmið og þörfina á að aðlaga framleiðsluna að kröfum markaðarins. Hins vegar voru greinilega ýmsar ágætar ályktanir samþykktar þannig að ég ákvað að láta síðuna fljóta inn út á það og vona bara að þessi eini ályktunarpartur komist aldrei neitt lengra.

Heilsufarið fer skánandi, verst að þessi pestarskítur hefur tafið mig við lesturinn (ég get alla vega reynt að telja mér trú um að ég hefði lesið í gær og fyrradag ef ég hefði verið frískari). Þrátt fyrir batnandi heilsu voru afköstin reyndar minni í dag en ég hefði viljað en við hverju er að búast þegar lesefnið inniheldur setningar á borð við þessa: "Two-month-old Itgb6+, Itgb6-Tg(ITGB6FL) and Itgb6-Tg(ITGB6777T mice have markedly reduced levels of Mmp12 expression compared with Itgb6- and Itgb6-Tg(ITGBD140A) mice". Frekar auðvelt að tapa einbeitingunni yfir svona texta og því er ég ekki búin að lesa nema brot af því sem ég ætlaði mér að vera búin með fyrir morgundaginn. Þrátt fyrir það hef ég líklega sjaldan eða aldrei verið búin að lesa jafn mikið á þriðja degi annar og núna, hefur aldrei verið mín sterka hlið að byrja að læra á sama tíma og það er byrjað að kenna mér.

En jæja, nú er ég búin að eyða svo löngum tíma í að blogga til að það sé orðið nokkuð ljóst að ég les ekki meira í kvöld og því best að hafa sig í háttinn. Er ekki einu sinni viss um að ég hafi rænu á að drekka bjórinn sem ég á inni í ísskáp, síðasta bjórinn í fyrstu og líklega jafnframt seinustu bjórkippunni sem ég kaupi mér í þessum mánuði - taktu eftir því Óðinn (NB ég er ekki heldur búin að kaupa mér bjórkassa eða staka bjóra, í þessum mánuði hef ég ekki keypt annað áfengi en þessa sex Carlsberg og geri aðrir betur búandi í Danaveldi).

Eða jú, kannski ég skelli þessum síðasta í mig, hann gæti verið alveg að fara að skemmast.

Batnandi sveitalubbinn býður góða nótt og biður að heilsa í bili

Efnisorð: , ,

þriðjudagur, apríl 24, 2007

ja nú verðið þið hissa

Það hvarflar öðru hvoru að mér að það gæti verið gott að gerast kaþólsk. Hljómar kannski einkennilega þar sem ég er svo sem ekkert sérstaklega kirkjurækin en fyrir þessu eru ástæður sem ég nenni ekki að skilgreina fyrir sjálfri mér og hvað þá öðrum.
Þegar ég sé fréttir á borð við þessa og reyndar ýmsar aðrar sem hafa komið frá hæstráðendum kaþólsku kirkjunnar í gegnum tíðina skipti ég hins vegar all snarlega um skoðun og kem því væntanlega til með að halda mig við íslensku þjóðkirkjuna um ókomna framtíð.
Sorglegt þegar allt það góða sem Kristnin boðar og stendur fyrir og er grundvöllurinn fyrir siðfræðinni sem samfélagið okkar byggir á er látið víkja fyrir þröngsýni og afturhaldssemi.
Reyndar er ég samt ein hinna þröngsýnu og afturhaldssömu í alla vega einu máli þó að það sé ekki ástæðan fyrir þessum vangaveltum mínum.

Sjálfsagt er þetta of ruglningslega orðað til að nokkur botni í þessu en ég hef það mér til varnar að klukkan er að verða eitt að nóttu til og ég er búin að lifa á verkjatöflum og bjór í þrjá daga (aðallega verkjatöflum samt). Pælingin á bak við færsluna er samt til staðar burtséð frá verkjalyfjum og bjór þannig að þetta er ekki algjört óráðshjal.

veit ekki alveg hvort ég á að þora að leifa komment á þetta...

góða nótt
Sveitalubbinn, dópaður, syfjaður, kvefaður og með hálsbólgu og almennan aumingjaskap

Efnisorð:

mánudagur, apríl 23, 2007

Hamingjuóskir...

...fá pabbi minn og mamma í tilefni 29 ára brúðkaupsafmælisins í gær. Þau eru sko langbest:)

Næstbestur í dag er snillingurinn sem fann upp verkjalyfin. Guði sé lof fyrir hann

kveðjur frá lösnum sveitalubba sem kemur heim til Íslands eftir tvo mánuði (virtist voða stutt, alveg þar til ég frétti að það væru komin lömb heima, þá urðu mánuðirnir tveir ígildi árs)

Efnisorð:

laugardagur, apríl 21, 2007

þriðji í sumri

ÉG BIÐ AÐ HEILSA
Nú andar suðrið sæla vindum þýðum.
Á sjónum allar bárur smáar rísa
og flykkjast heim að fögru landi ísa,
að fósturjarðar minnar strönd og hlíðum.


Ó, heilsið öllum heima rómi blíðum
um hæð og sund í drottins ást og friði.
Kyssið þið, bárur, bát á fiskimiði.
Blásið þið, vindar, hlýtt á kinnum fríðum.


Vorboðinn ljúfi, fuglinn trúr, sem fer
með fjaðrabliki háa vegaleysu
í sumardal að kveða kvæðin þín!
Heilsaðu einkum, ef að fyrir ber
engil með húfu og rauðan skúf, í peysu.
Þröstur minn góður, það er stúlkan mín

(Jónas Hallgrímsson)

Með þessu fallega ljóði sendi ég ykkur sem þetta lesið mínar bestu óskir um gleðilegt sumar og þakka fyrir veturinn.

Þetta er eitt af mínum uppáhaldsljóðum og ég er alveg sannfærð um að það hefur einmitt verið um þetta leiti árs sem Jónas samdi það. Jafnframt tel ég víst að honum væri það ekkert á móti skapi þó að kveðjan hans væri enn notuð, hundrað og eitthvað mörgum árum síðar, af námsmönnum í Kaupinhafn til að senda sumarkveðjurnar sínar heim til Íslandsins.

Jújú, ég veit að ég er dáldið sein að koma með sumarkveðjuna (hvenær hef ég svo sem verið á undan áætlun með eitthvað) en þið verðið bara að meta það að hún kom þó fyrir rest.
Ætlunin var að skella þessu inn á sumardaginn fyrsta en þar sem ég lagði land undir fót á síðasta vetrardag og hélt erlendis til að starfa sem aupair varð ekkert úr því. Eins reglusöm og ég er tók ég starf mitt að sjálfsögðu alltof alvarlega til að vera að eyða tímanum í að blogga. Starfsframa mínum sem au pair lauk hins vegar hratt og örugglega tveimur dögum síðar og er ég því komin aftur á slóðir Jónasar og hinna snillinganna allra.

Annars er svo sem lítið að segja. Er of þreytt eftir tveggja tíma dvöl í Field´s í dag (þeir voru heppnir Jónas og Co að það fyrirbæri skyldi ekki vera til þegar þeir voru hér við nám, hefur sparað þeim bæði pening, fótþreytu og geðvonsku) til að nenna að ræða þau þjóðfélagsmál sem kunna að liggja mér á hjarta. Örvæntið samt ekki, þetta stendur allt til bóta því það byrjar ný önn á mánudaginn með tilheyrandi lestraráformum og verkefnavinnu og eins og margoft hefur sýnt sig er bloggið aldrei eins líflegt og þegar ég á/ætla að vera að gera eitthvað annað.

Það er svo kannski rétt að enda færsluna á að óska dönsku konungsfjölskyldunni og náttúrulega Dönum öllum til hamingju með prinsessuna litlu sem fæddist í dag (bara svona til vonar og vara, aldrei að vita hverjir rekast hérna inn). Hins vegar verð ég að segja það að ég er dáldið svekkt að hafa ekki verið boðin í afmæliskaffi hjá Margréti um daginn, stórafmæli og allt. Ekki það að ég hefði sjálfsagt ekkert mætt, var á fullu í próflestri og hafði þ.a.l. ekkert tíma í neitt sociallíf en það er sama, manni getur nú sárnað:)

Sumar og sólarkveðjur frá sveitalubbanum, vel og rækilega vindblásnum.

Efnisorð:

laugardagur, apríl 14, 2007

sko....

....ég hélt það væri ekki hægt en Danir labba hægar en Reykvíkingar. Langaði alveg að hvæsa á nokkra sem hreinlega læddust eftir gangstéttunum í gær þannig að ég var eins og besti stórsvigskappi þegar ég tók fram úr hverjum á fætur öðrum. Get alveg fyrirgefið ellilífeyrisþegum reyndar og jafnvel fólki með lítil börn (mættu þó alveg reyna að halda sig hægra megin á gangstéttinni til að trufla ekki umferð) en fullfrísku fólki á besta aldri vorkenni ég bara ekkert að ganga á eðlilegum hraða. Pirri pirr. Þetta var aðeins að fara í taugarnar á mér í gær og ég held ég fari bara ekkert út í dag til að lenda ekki í því sama. Synd samt því veðrið er geggjað.

Þá til Íslandsins.

Þó ég sé yfirleitt ekkert hrifin af Reykjavík þá vil ég hrósa borgarstjórnarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins fyrir grænu skrefin tíu sem þeir kynntu í vikunni. Mjög gott framtak að mínu mati og bara vonandi að íbúarnir sjái sóma sinn í að nýta sér þessa þjónustu og leggja þannig sitt af mörkunum til umhverfisverndar. Já, hvort sem ykkur líkar betur eða verr þá er nefnilega fleira umhverfisvernd/náttúruvernd en að berjast á móti virkjunum og álverum.
En það er kannski ekkert skemmtilegt og þaðan af síður fínt að vera umhverfisverndarsinni ef það krefst einhverra breytinga á lífsháttum eða fórna eða fyrirhafnar í daglegu lífi OG engar líkur til að komast í sjónvarpið út á það.
Mér fyndist t.d. alveg kjörið að setja eitthvað af þeim sem hafa hæst í sambandi við náttúru- og umhverfisvernd undir sérstaka smásjá í þessum efnum og tékka á hvort þeir séu eins umhverfisvænir í sínu daglega lífi og þeir vilja vera láta út á við Ef svo er ekki mætti hreinlega banna þeim að koma fram í nafni umhvefisverndarsamtaka ef þeir stæðust ekki kröfur (kröfurnar þyrftu samt auðvitað að vera raunhæfar miðað við aðstæður hvers og eins) og jafnvel setja stimpil þar sem stæði HRÆSNARI á ennið á þeim.
Ekki vitlaus hugmynd ha???

Nú, hvað næst, jú páskaeggið mitt góða, ekki seinna vænna að blogga um það viku eftir páska.
Ótrúlegt en satt þá fékk páskaeggið mitt að vera í friði alveg fram á páskadag. Nánar tiltekið til hálf tólf á páskadagskvöld, þegar ég kom heim frá því að éta ofsa góða lambið hjá Dagbjörtu og Andrési.
Eða næstum því í friði, ég opnaði það um sex leitið til að ná í málsháttinn en byrjaði ekki að éta fyrr en hálf tólf. Og þar hafiði það.
Það var reyndar búið að hvarfla að mér nokkrum dögum fyrr að opna það, svona rétt til að tékka á hvort það væri ekki örugglega óskemmt eftir flutning milli landa.
Jú, ég geri mér samt alveg grein fyrir að það er líklegt að skemmdir í flutningum hefðu verið sjáanlegar á yfirborði og því ekki nauðsynlegt að opna það til að tékka á þeim. Hins vegar er til eitthvað sem heitir innvortis meiðsl sem getur verið skynsamlegt að tékka á ekki satt.
Það gekk svo aftur á móti fljótt og vel að éta páskaeggið þegar ég loksins byrjaði, með tilheyrandi sykursjokksmáttleysi og hjartsláttartruflunum. Það er svoleiðis með suma hluti hjá mér að þeir ganga fljótt og vel þegar ég byrja;)

Held ég hafi lítið meira að segja eins og er. Nema jú, ein spurning. Hvað er málið með þetta x-factor dæmi. Var þetta einhver söngvarakeppni eins og Idol eða hvað???
Ég sá ekki einn einasta þátt og veit ekki hvað þetta gekk út á nema það hafði eitthvað með söng að gera.
Alla vega, ef þetta var söngvarakeppni, rosalega hafa þá verið lélegir söngvarar í henni fyrst þessi Jógvan eða hvað hann nú heitir, þarna hárgreiðslu-förðunar-færeyingurinn, vann. Var að heyra í honum í fyrsta skipti rétt í þessu og mér finnst hann bara alls ekki syngja vel. Og svo lítur hann akkúrat ekki út eins og karlmenn eiga að líta út að mínu mati, varla eins og karlmaður yfirleitt, í besta falli fermingarstrákur. Hef reyndar bara séð eina mynd af honum og kannski var hún bara ekki góð (úbbbs, nú talar Elín aldrei við mig oftar!!!, en þér að segja Elín þá finnst mérFæreyingar alveg töff fólk, bara ekki þessi)

Jæja, nú er þetta víst orðið nógu langt og vel það og rétt að halda áfram að naga gulrótina mína og fara að lesa fyrir próf, margar margar blaðsíður sem bíða en ef einhver getur útskýrt fyrir mér af hverju síðan mín er allt í einu orðin á dönsku væri það vel þegið.

Fylgist svo vel með veðurupplýsingum frá Danaveldi um helgina og grenjið þegar þið sjáið hitatölurnar....fyrir mína hönd af því að ég verð að vera inni og lesa.

Kveðja frá sveitalubbanum, pirruðum í gær en töluvert skapbetri í dag (takk fyrir spjallið í gærkvöldi Magga ef þú lest þetta, það hjálpaði geðheilsunni mikið).

Efnisorð:

miðvikudagur, apríl 11, 2007

urrrrrrrr

Gat nú verið. Núna get ég náttúrulega ekki sofnað. Ég sem get yfirleitt sofið daginn út og daginn inn og miklu meira en ég þarf samkvæmt stöðlum get ekki með nokkru móti sofnað þrátt fyrir að þurfa svo sannarlega á því að halda. Sit í staðinn stjörf af þreytu eftir svefnlitla nótt og hef ekki orku í að einbeita mér að nokkrum sköpuðum hlut -ekki það að það þurfi orkuskort til að orsaka einbeitingarleysi hjá mér en hann bætir alla vega ekki úr skák.
Fyrsta skiptið síðustu hundrað árin eða svo sem ég get réttlætt það fyri r mér að leggja mig að degi til og ég get ekki sofnað.
Ömurlegt.

En best að prófa að fara út í rokbelginginn, rölta upp í skóla og prenta út ritgerðina sem ég hafði það loksins af að klára og skila í morgun, auk annarrar sem ég þarf víst að lesa fyrir föstudaginn og fjallar að ég held um geld svín. Spennandi.
Kannski get ég sofnað eftir labbitúrinn eða þá að ég vakna nógu vel til að byrja á fyrirlestri og próflestri

Farin út í sólina, rokið og vorið
Þreytti sveitalubbinn

Efnisorð:

laugardagur, apríl 07, 2007

Í tilefni gærdagsins...

... set ég þetta inn.

Ég kveiki á kertum mínum
við krossins helga tré.
Í öllum sálmum sínum
hinn seki beygir kné.
Ég villtist oft af vegi.
Ég vakti oft og bað.
Nú hallar helgum degi
á Hausaskeljastað.

Í gegnum móðu og mistur
ég mikil undur sé.
Ég sé þig koma, Kristur,
með krossins þunga tré.
Af enni daggir drjúpa,
og dýrð úr augum skín.
Á klettinn vil ég krjúpa
og kyssa sporin þín.

Þín braut er þyrnum þakin,
hver þyrnir falskur koss.
Ég sé þig negldan nakinn
sem níðing upp á kross.
Ég sé þig hæddan hanga
á Hausaskeljastað.
Þann lausnardaginn langa
var líf þitt fullkomnað.

Ég bíð, uns birtir yfir
og bjarminn roðar tind.
Hvert barn, hvert ljóð, sem lifir,
skal lúta krossins mynd.
Hann var og verður kysstur.
Hann vermir kalda sál.
Þitt líf og kvalir, Kristur,
er krossins þögla mál.

Þú ert hinn góði gestur
og guð á meðal vor,
og sá er bróðir bestur,
sem blessar öll þín spor
og hvorki silfri safnar
né sverð í höndum ber,
en öllu illu hafnar
og aðeins fylgir þér.

Þú einn vilt alla styðja
og öllum sýna tryggð.
Þú einn vilt alla biðja
og öllum kenna dyggð.
Þú einn vilt alla hvíla
og öllum veita lið.
Þú einn vilt öllum skýla
og öllum gefa grið.

Að kofa og konungshöllum
þú kemur einn á ferð.
Þú grætur yfir öllum
og allra syndir berð.
Þú veist er veikir kalla
á vin að leiða sig.
Þú sérð og elskar alla,
þó allir svíki þig.

Ég fell að fótum þínum
og faðma lífsins tré.
Með innri augum mínum
ég undur mikil sé.
Þú stýrir vorsins veldi
og verndar hverja rós.
Frá þínum ástareldi
allir heimar ljós.
(Davíð Stefánsson frá Fagraskógi)

Set þetta nú bara hér inn því mér finnst þetta svo fallegt en kannski er rétt að taka það fram að mér hefði sjálfsagt ekki dottið þetta í hug ef ég hefði ekki rekist á þennan sálm á bloggsíðu hjá einhverjum manni í gær. Mátti bara til með að leyfa mínum lesendum ef einhverjir eru að njóta hans líka.

Óska ykkur góðra og gleðilegra páska

Hallfríður Ósk

þriðjudagur, apríl 03, 2007

nokkrir samhengislausir punktar

  • ég er byrjuð að skrifa ritgerðina. Smá. Mikið eftir enn en vonandi verða afköstin meiri á morgun fyrst ég náði alla vega að koma mér hálfa leið yfir þennan erfiða þröskuld í dag
  • reyndar margir þröskuldar eftir til að yfirstíga á næstunni (og líka nokkrir sem ég ekkert viss um að ég ætli að yfirstíga) en einn er hver einn
  • mig langar alveg svaka, svaka, svakalega mikið á hestbak
  • folaldið hennar systur minnar er frekjudós (öfugt við litla engilinn minn sem ekkert gerir af sér:)
  • hefði verið gaman að sjá upplitið á rollunum þegar folaldsgreyið stökk yfir til þeirra og spásseraði þar um. Allt í lagi svo sem fyrst hún fór ekki niður úr gólfinu og svo voru þetta bara einlemburnar og þær eiga ekkert betra skilið en að vera hrekktar svolítið
  • tréð með hvítu fallegu blómunum er farið að laufgast og svipað tré í næsta garði skartar núna óhemju magni af bleikum blómum og er ekki síður fallegt.
  • tréð með hangandi greinunum og laufunum er líka flott núna þrátt fyrir að engin beri það blómin. Hengigreinarnar eru alsettar af brumi þannig að þær líta út eins og perlubönd
  • hef svo sem aldrei verið neitt sérstaklega hrifin af trjám en þessi lífga svo upp á útsýnið út um gluggann minn að ég get ekki annað en verið ánægð með þau og ég er sem sagt búin að læra það í vetur að tré eru fín - samt bara í görðum en ekki upp um fjöll og firnindi
  • ég er að fara að borða kolumbískan mat annað kvöld. Anna Lucia var svo elskuleg að bjóða mér í mat. Spennandi!!
  • páskaeggið mitt fær enn að vera í friði - en bara í fjóra og hálfan dag í viðbót
  • Danir kunna ekki að baka rúgbrauð; mig langar í íslenskt rúgbrauð eins og Maja og Erla í Litlu Hlíð baka
  • mig langar reyndar svo margt og mikið en ætla ekkert að vera að eyða púðri í að telja það upp svona í bili
  • mig langaði ekki að vakna í morgun. Var að dreyma svo ósköp vel aldrei þessu vant, en mig dreymir yfirleitt ekki neitt. Þvílíkt svekkelsi. Og nei, ég ætla ekki að segja ykkur hvað mig var að dreyma
  • hef líklega sjaldan birt jafn lítið spennadi blogg en langaði bara að skrifa þetta niður og þá er alveg eins gott að ganga alla leið og birta það líka

kveð svo bara úr andleysi, tilbreytingarleysi, aðgerðarleysi, hreyfingarleysi, peningaleysi, já bara úr alls konar leysi... og býð góða nótt

mvh
sveitalubbinn allslausi - eða svoleiðis (kannski frekar margslausi þó það sé víst ekkert orð)

Efnisorð:

mánudagur, apríl 02, 2007

Af hverju...

...ætli mér reynist miklu auðveldara að koma mér í gang við að skrifa bloggfærslur heldur en ritgerð???

Ég er sem sagt ekki enn búin með ritgerðina í meat production sem stóð til að skila þann 30. mars. Kennarinn ákvað að fresta skilum fram yfir páska og það má segja að ég hafi fengið að vita það ca hálfum sólarhring of snemma. Hálfum sólarhringi seinna hefði ég nefnilega væntanlega verið búin að yfirstíga þann skelfilega háa og erfiða þröskuld að byrja að skrifa og væri þá hugsanlega langt komin eða jafnvel búin og gæti verið að njóta góða veðursins núna, nú eða lesa fyrir próf.
En þýðir ekkert að fást um það og ekkert annað í stöðunni en að lofa bót og betrun og hafa sig af stað....á morgun. Fer nú ekki að tapa svefni yfir þessu meðan enn er vika til stefnu.

Þórey kommentaði um daginn, að ég held hjá öllum bekkjarfélögunum sem halda úti bloggsíðu (nema þessum sem ekki er búinn að uppfæra sína síðan um jól - taki til sín sem eiga) og ég var að hugsa um að svara henni á öllum síðunum. Mín eðlislæga leti tók svo yfirhöndina og ég ákvað að láta duga að gera það hér.

Hún var sem sagt að spá í bekkjarhitting í sumar. Hljómar vel og ég mun örugglega reyna að mæta ef ég mögulega get. Hins vegar ætla ég að vera hreinskilin og lýsi því hér með yfir að ég nenni hvorki að taka þátt í skipulagsvinnu eða ákvarðanatöku í sambandi við þetta. Ég er félagsskítur, ég veit það vel. En fyrir það fyrsta er ég náttúrulega gersneidd öllum skipulagshæfileikum og auk þess hef ég nóg með að skipuleggja og taka ákvarðanir um mitt eigið líf og persónulegu málefni þessa stundina. Svo er ég líka löt.

Kannski rétt að taka fram að ég ætlast að sjálfsögðu ekki til þess að aðrir nenni þessu neitt frekar (enda væri það líklega hámark sjálfhverfu og eiginhagsmunasemi). En mikið asskoti yrði þetta nú skemmtilegt ef einhverjir hafa meiri nennu í svona skipulagningu en ég og af yrði.
Ég geri mér líka grein fyrir því að miðað við þessa yfirlýsingu er ég í afar slæmri stöðu til að setja fram einhverjar óskir um tíma og/eða staðsetningu. Samt sem áður ætla ég að minna á að ef hittingurinn (ef af verður) á að vera annars staðar en í Danmörku er júnímánuður ekki í boði af minni hálfu. Reikna ekki með að koma neitt heim fyrr en í endaðan júní. Og þar með vitið þið líka hvað þið getið gert til að koma í veg fyrir að ég mæti:)
Jafnframt er það á hreinu að ég kem til með að strauja austur á land á hestamannamót helgina 28. júní-1. júlí, hvað sem öllum bekkjarhittingi líður, ef ég get með nokkru móti talið mér trú um að fjárhagurinn leifi. Nú og ef ég hef ekki efni á hestamannamótsferð hef ég sjálfsagt ekkert frekar efni á nokkrum öðrum ferðalögum né skemmtunum og kemst þá hvort sem er ekki á bekkjarhitting þá helgina.
Reyndar myndi passa mér fínt að hafa hittinginn í Danmörku einhvern tíman í júní. Vantar endilega burðardýr fyrir eitthvað af yfirvigtinni minni (þ.e. þeirri sem ekki er gróinn við afturendann á mér) heim. Er farin að sjá fram á verulega fjárútlát á þessu sviði.

Þá er ég alla vega búin að koma þessu á framfæri og svara Þóreyju og hugsa því ekki meir um þetta fyrr en ég annað hvort fæ boð í hitting eða meldingu um að það verði ekkert af svoleiðis.
Kemur allt í ljós.

Áður en ég enda þessa færslu og fer að sofa má ég svo til með að segja frá því stórmerkilega afreki að ég er búin að eiga mörghundruð grömm af súkkulaði inn á herbergi hjá mér í tvær vikur án þess svo mikið sem láta mér detta í hug að éta það. Hver hefði trúað því að þetta ætti einhvern tíman eftir að gerast að ÉG gæti átt nammi í tvær vikur?? Þarna er, eins og þið hafið eflaust getað giskað á, um að ræða Nóa Siríus páskaeggið mitt númer fimm sem fjölskyldan færði mér um daginn. Hvað haldið þið, næ ég að þrauka dagana fimm og hálfan sem eftir eru þar til mér verður heimilt að éta það??

Það er alla vega svo sannarlega planið en mikið ofboðslega hlakka ég til á sunnudaginn. Ekki nóg með að mega þá eta eggið heldur er mér líka boðið í mat, þessa fínu lambasteik, hjá Dagbjörtu, nýtrúlofuðu frænku minni og Andrési unnusta hennar sem vill einmitt svo vel til að er snilldar kokkur. Afar góður eiginleiki í fari karlmanns og ég myndi eflaust hafa þennan hæfileika í huga ef ég ætlaði að ná mér í mann svona yfireitt.

og með það býður sveitalubbinn góða nótt og sendir ykkur bestu kveðjur frá Kóngsins Kaupinhafn (væri kannski réttara að kalla það Drottningarinnar Kaupinhafn eins og staðan er núna)

Efnisorð: