Sauðfjárræktin í september 2013
Fyrstu 156 lömbin fóru í sláturhús 12 september. Meðalverð á innlegginu var rúmar 611 kr/kg. M.v. að útreiknað meðalverð LS á lambakjöti fyrir haustið 2013 er 580 kr/kg og fyrir umrædda sláturviku 607 kr/kg erum við bara nokkuð sátt. Vænleikinn var reyndar alltof lítill en hafa ber í huga að fallþungi þessara lamba hefði þurft að vera kílói meiri þremur vikum seinna til að sama verð fengist fyrir stykkið og ég tel mjög ólíklegt að svo hefði verið.
Jákvætt við þessa slátrun var svo líka að það voru tveir veturgamlir hrútar sem voru með áberandi mesta vænleikann hjá afkvæmum sínum; þeir Kraftur Þróttarson og Kappi Kjarksson. Alltaf gaman og vísbending um að eitthvað sé að virka í ræktunarstarfinu þegar yngsta kynslóðin er best. Hins vegar er fjöldinn sem farinn er undan hverjum hrút ekki mikill svo þetta getur allt átt eftir að breytast.
Í gær voru svo ómskoðaðar eitthvað um 200 gimbrar og slurkur af sæðishrútum.
Meðalómvöðvi gimbranna var 26,5 mm, fita 2,8 og lögun 3,8. Meðaleinkunn fyrir frampart var 8,1, læri 17 og ull.... ja látum hana bara liggja á milli hluta!!! Þetta er nánast sami vöðvi og í fyrra, minni fita örlítið slakari lögun, sama fyrir frampart og læri en lækkun á ull. Þarf endilega að minnka birtuna við skoðunaraðstöðuna fyrir næsta haust.
Annars er það nú líklega mest einn veturgamall hrútur sem á sök á lækkaðri ullareinkunn þetta árið en dætur Kóngs Gosasonar fengu að meðaltali ekki nema 7,5 fyrir ull - samt ekki "mislitar" í venjulegum skilningi þess orðs heldur einfaldlega ákaflega fallega gular. Þær bæta aftur á móti vel upp fyrir ullina með læraeinkunn upp á 17,6!!
16 hrútar voru fullstigaðir þetta árið en sæðingahrútarnir voru ansi misjafnir þetta árið og margir sem voru ekki fullstigaðir heldur hent strax eftir ómmælingu. Flest stigin hlaut Stálasonur undan Grettisdóttur (Raftssonar) með 85,5 stig. Ekki alveg búið að ákveða hvað verður um hann samt. Aðrir sem eru vænlegir í ásetning eru tveir Gaurssynir, annar undan Perlu minni en hinn undan Dökkvadóttur sem eru ótvíræð meðmæli. Tenorssonur undan heimagangskvikindi sem systir mín á. Svo er einn Púkasonur undan Raftsdóttur sem ekki þóknaðist að mæta til mælingar en verður tekinn til nánari athugunar næst þegar hann kemur inn. Þó sæðislömbin stæðu í heildina ekki alveg undir væntingum held ég að við náum sæmilegum ásetning út úr þessu.
Ég hef svona ca 2 heila daga til að liggja yfir pappírunum og ákveða endanlega hvað fær að vera og hvað ekki því næsta slátrun er á mánudag og svo aftur á fimmtudag. Alltaf frekar spennandi verkefni sem ég get dundað mér nokkurn veginn endalaust við ef ekkert rekur á eftir.
Nóg af rollum í bili - það er aldrei þessu vant þurrt úti og því rétt að reka nefið aðeins út :)