16. júlí í dag...
...og þessi mynd lýsir best mínu hugarfari þessa stundina


eftir tvo daga legg ég sem betur fer af stað í ferðalag þar sem væntanlega verður lítið fylgst með fréttum og þarf þar af leiðandi ekki að horfa á gleiðbrosandi samfylkingarfólk færa stórveldum vestur og miðevrópu yfirráð yfir auðlindum okkar og þar með sjálfstæði okkar á silfurfati - og meira að segja borga með því.
Hafi ég einhvern tíman velt því fyrir mér að kjósa vinstri græna þá er útséð um að það verði meðan sú hreyfing státar af jafn þægri og auðtamdri forystu og raun hefur borið vitni á undanförnum dögum.
Nei, frekar en hlústa á glaðhlakkalega samfylkingarmenn sem hlakka til að enda starfsferilinn á þægilegri skrifstofu í Brussel og þrælslundaða vinstir græna (þó með fáum undantekningum) vil ég frekar ríða um fjöll og firnindi, skála fyrir landi og þjóð og kyrja þjóðsönginn og önnur ættjarðarljóð.
Þung í skapi í dag og nenni því ekki að skrifa neitt um hápunkta sumarsins fram að þessu. Geðheilsan verður vonandi eitthvað skárri eftir viku eða svo og því hægt að lifa í voninni um almennilegt blogg upp úr því.
Sveitalubbinn kveður og leggur von bráðar upp í ferð...
ps. Hrafnhildur (og Oddný) ástæðan fyrir að ég var ekki búin að svara kommentunum ykkar frá því í síðustu færslu er aldeilis ekki sú að mér sé svara vant eða skorti rök á móti ykkar skoðunum heldur einfaldlega að ég er haldin ritstíflu þessa mánuðina (kemur sér afskaplega illa þegar maður á að vera að skrifa ms ritgerð) og hef því ekki nennt að setja þau á prent. Ég ætla því einfaldlega að svara ykkur því til að mér finnst bara ekkert skárra að slá um sig fyrir kosningar með loforðum um peninga úr tómum ríkissjóði af því að það eigi einhver annar sök á því að hann hafi tæmst. Að sama skapi er líka sjálfsagt að minna á að í þau (sem betur fer fáu) skipti sem vinstri stjórnir hafa ráðið ríkjum í landinu hafa þær alltaf skilað ríkiskassanum af sér í verra ástandi en þær tóku við honum - og það sama gildir reyndar að ég held um vinstri sinnaða borgarstjórnarmeirihluta og sjóði Reykjavíkurborgar ef út í það er farið. Ekki að það komi mér sérstaklega við svo sem nema hvað ég hygg að oft hafi verið um sama fólkið að ræða að einhverju leiti.
Með því að taka við ríkiskassanum tómum hefði mátt búast við að þessi stjórn gæti breytt gangi sögunnar að þessu leiti en því miður sýnist mér frekar að hún ætli að sanna það sem svo sem hefur lengi verið vitað að lengi getur vont versnað.
Frekari umræður um stjórnmálaflokka, bankahrun og spillingu í viðskiptum og stjórnmálum hér á landi sem erlendis bíða betri tíma og væntanlega þess að við hittumst einhvern tíman á góðri stund því ég er ekki að sjá fyrir mér að ég nenni að skrifa langa pistla eða rífast á netinu um stjornmál alveg í næstu framtíð.
Svo er annað mál hvort við kærum okkur um að eyða góðu stundinni í þras um stjórnmál sem við fáum tæpast niðurstöðu í í náinni framtíð.
