þriðjudagur, maí 22, 2007

jafnrétti hvað

Hvaða andskotans jafnrétti er í því að hafa jafna kynjaskiptingu í ráðherraembætti þegar karlar eru fleiri á þingi. Ég er ekki mjög klár í líkindareikningi en sýnist nokkuð augljóst að það er verið að taka konur fram yfir karla eingöngu á grundvelli kynferðis, konur hafi þá hærri líkur á að verða ráðherra og það getur að mínu mati aldrei talist jafnrétti. Þetta er dæmi um kvenréttindastefnu eða öðru nafni kvenrembu sem er alls ekki jákvæð.
Óþolandi þessi afbökun á jafnréttishugtakinu sem sést svo ótrúlega víða. Það er eins og fólk viti ekki lengur hvað orðið "jafn" þýðir.

Annars hafði ég lúmskt gaman að því að til skamms tíma í dag birtist myndin og videoið sem fylgir fréttinni í linknum hér að ofan einnig með frétt um ofsaakstur einhvers staðar á Reykjavíkursvæðinu. Sjálfsagt hefur það ekki verið ISG sem var með svona þungan bensínfót, alla vega sýnist mér vera búið að breyta þessu núna en mér fannst þetta samt skemmtilegt.

Ég mátti bara til með að hvæsa aðeins yfir þessu kellingakjaftæði hérna og nú er það búið og ég hef enga afsökun lengur fyrir að fara að ráðast á þvottafjallið mitt. Held ég sakni þvottavélarinnar minnar meira en allra annarra að heiman (eða svona næstum því alla vega), en nú eru ekki eftir nema 2-3 skipti eftir þetta og svo get ég farið að í þvo þegar mér sýnist , án þess að fara að heiman og án þess að borga fyrir það fúlgur fjár í hvert skipti.

Sumarkveðja
Sveitalubbinn - á heimleið eftir nákvæmlega einn mánuð:)

Efnisorð:

laugardagur, maí 19, 2007

hvernig getur....

....eitthvað svona blautt og slímugt og slepjulegt verið svona ótrúlega sætt???


Held þetta sé svona nokkurn veginn það krúttlegasta í heimi, þetta ásamt hljóðinu sem móðirin gefur frá sér á meðan hún karar lambið. Þessu er ég að missa af og þið getið alveg sleppt því að kommenta um að þetta sé nú bara einn sauðburður, það komi annar o.s.frv. Sú vitneskja gerir það bara ekkert léttara að vera fjarri. Hvað veit ég svo sem heldur um hvað gerist á þessu ári þar til næsti sauðburður byrjar, það er aldrei neitt tryggt. Ég veit að Maríanna skilur mig alla vega...!

Annars átti þetta ekkert að verða neitt svartsýnisblogg þó að ég sé svo sannarlega ennþá svartsýn og súr eins og í tveimur síðustu færslum.

Síðustu dagar hafa samt verið ágætir alveg hérna í baunalandinu. Veðrið reyndar dáldið rysjótt og ég held svei mér þá að Ísland eigi ekkert met í snöggum veðrabrigðum og óáreiðanlegum veðurspám. Í gær var samt sól og blíða og við Magga fórum í túristaleik, þrömmuðum á methraða niður á Ráðhústorg og þaðan út á Langelinje. Sáum rústir af turni, höll og flotta garða um leið og við stormuðum hjá. Sáum líka á hafmeyjuna litlu sem er líklega eitthvert ofmetnasta túristaattraction sem um getur. Varð samt fyrir svolitlum vonbrigðum að hún skyldi hvorki vera rauð- eða bleikmáluð né hauslaus. Hefði verið ágætis tilbreyting þar sem ég var að sjá hana í þriðja skipti og eiginlega ótrúlegt miðað við hvað skemmdarvargar sækja í að níðast á henni að ég skuli aldrei hafa séð hana í annarlegu ástandi. Annars var það eiginlega alveg óvart að við sáum hana, enda var það ekki markmið leiðangursins. Vorum sem sé að leita að einhverju Kaupþingsútibúi sem átti að vera einhvers staðar á þessu svæði. Það gekk sko ekki þrautalaust að finna það en það má líklega rekja að verulegu leiti til takmarkaðra kortalestrarhæfileika undirritaðrar en við höldum því samt líka fram að Danir kunni illa að merka götur. Alla vega þá fannst útibúið fyrir rest, um það leiti sem við vorum orðnar gengnar upp að hnjám og við það að örmagnast af hungri, enda var að erindinu loknu tekinn fyrsti strætó niður í Nyhavn. Þar var stormað inn á fyrsta veitingastaðinn sem við fundum, eða öllu heldur þann fyrsta sem bæði bauð upp á eitthvað annað en sjávarrétti og var með laus borð og þar var etin einhver besta samloka sem ég hef á ævi minni smakkað, veit ekki alveg samt hvort sú niðurstaða er marktæk, líklega hefðu meira að segja sjávarréttirnir eða smörrebröd smakkast vel á þessum tímapunkti. Eftir átið var svo fundin sú leið, eða öllu heldur sá ferðamáti sem krafðist fæstra skrefa og haldið heim á leið. Þarf ekki að taka fram að það varð ekki mikið úr lestri það sem eftir var dagsins og hreyfing varð algjörlega í lágmarki. Varla að ég drattaðist inn í eldhús í matarleit einu sinni. Fínn dagur samt en ég lít í dag út eins og rauðnefjaða hreindýrið Rúdolf á góðum degi...

Besta stund gærdagsins held ég samt að hafi verið þegar ég keypti mér loksins flugfar heim og þar með var það ákveðið að eftir fimm vikur nákvæmlega þegar þetta er skrifað ætla ég að vera þarna:
Sem sagt á Fjöruhlaðborði í Hamarsbúð og belgja mig út af öllum þeim kræsingum sem þar eru í boði. Þegar yfir 50 réttir eru á boðstólnum finnur jafnvel fólk með matvendni á jafn háu stigi og ég eitthvað við sitt hæfi.

Ég ætla sko ekki að láta líða tvö ár án þess að ég mæti á þessa öndvegisskemmtun takk fyrir (komst sem sagt ekki í fyrra, þökk sé systur minni elskulegri og manninum hennar sem þurftu endilega að velja þennan dag til að láta pússa sig saman:).

Alla vega. Seint að kvöldi föstudagsins 22. júní lendi ég á Íslandinu góða sem ég þarf svo vonandi ekki að yfirgefa aftur í bráð. Það verður brunað norður í Víðidalinn góða (sem ég hef aldrei á ævinni verið fjarri eins lengi og núna), og við tekur nýtt líf sem atvinnulaus aumingi á framfæri aldraðra foreldra, alla vega þar til annað verður ákveðið. Missionið fyrir sumarið er sem sagt að eltast við rollur, moka skít, heyja, ríða út og eyða eins litlum pening og hægt er. Læt það samt kannski eftir mér að fara á eins og eitt gott hestamannamót:)
En þetta er víst komið nóg, er að hugsa um að hafa mig í bælið. Nóg verkefni framundan eins og undanfarið og ég þarf jú minn svefn.
Kveðjur frá rauðnefjuðum sveitalubba í Kaupmannahöfn

fimmtudagur, maí 17, 2007

lífið eftir kosningar/eurovision!!

Kannski það sé tímabært að blogga um síðustu helgi, svona áður en það kemur ný. Það er reyndar enginn farinn að kvarta yfir bloggleysi enn, sem ég eiginlega frekar móðguð yfir, en nú kemur samt löööööööng færsla. Langar nefnilega ekki að fara að sofa og nenni ekki að lesa meira.

Alla vega þá var helgin fín. Skellti mér til Svíþjóðar á laugardaginn og eyddi kvöldinu í að éta góðan mat og drekka góða drykki í afar góðum félagsskap. Þvílíkur snilldar drykkur þessi mojito!!!

Það var náttúrulega horft á Eurovision og svo kosningasjónvarpið í framhaldi af því. Entist nú ekki nema fram undir klukkan þrjú í þetta skiptið, hefði líklega verið praktískara að fara fyrr að sofa og vakna í staðinn á venjulegum tíma (7-8) og ná þá restinni af talningunni en það er of seint séð núna. En þá að úrslitunum og fyrst Euroinu
  • Ennþá fúl yfir að Eiríkur komst ekki áfram
  • Sé samt engan tilgang í að missa mig í einhverjum austurevrópusamsæriskenningum
  • Í fyrsta lagi voru vestur evrópsku lögin (að því íslenska undanskildu) hvorki betri né verri en þau lélegustu sem komust áfram. Fannst t.d. fimmtuga Selma Björnsdóttirin frá Noregi ekki spennandi þó hún hefði það fram yfir dönsku dramadrottninguna að geta bæði borið sig nokkuð eðlilega um á hælaskónum og haldið lagi. Ef ég hefði ráðið hvaða lög hefðu komist áfram hefðu það verið Eiríkur og restin frá austur evrópu.
  • Í öðru lagi er það bara versta hræsni að tuða um samsæri og óeðlilegar stigaveitingar til nágranna þegar við leikum nákvæmlega sama leikinn. Erum bara svo óheppin að norðurlandaþjóðirnar eru fáar miðað við þær austur evrópsku.
  • Var nokkuð sátt við úrslitin í aðalkeppninni, fallegt lag og góð söngkona en afar leiðinlegt að horfa á hana. Samt plús að það sé ekki nauðsynlegt að vera í snípsíðu pilsi og með sílikonbrjóst til að vinna
  • Ungverska eða slóvakíska lagið hefðu reyndar alveg eins mátt vinna.
  • Skil aldrei hvað þessi "húmors" atriði ná langt í stigagjöfinni, iðulega í öðru sæti, sbr. það úkraínska núna og we are the winners dæmið í fyrra. Ég veit alveg að maður á ekki að taka þessa keppni of alvarlega en þetta er söngvakeppni og því fáránlegt að kjósa léleg og leiðinleg lög bara af því að manni finnst þau eða flytjandinn fyndinn
  • Finnska og Sænska lagið hefðu að mínu mati alveg mátt vera ofar, bæði prýðisgóð alveg (og ekki eykur það líkurnar fyrir Ísland að komast í aðalkeppnina á næsta ári þegar öll norðurlöndin verða í undankeppninni)
  • Að öðru leiti var mér slétt sama og finnst þetta tuð um að hætta að taka þátt út af litlum vinningsmöguleikum bara heimskulegur. Ekki heyrir maður talað um að hætta að vera með landslið í fótbolta þó að árangurinn sé yfirleitt ekki betri þar á bæ. Þetta er afþreyingarefni fyrst og fremst og virkar bara ágætlega sem slíkt. Við vitum það líka alveg að við erum alltaf best, í þessu sem öðru, og ef aðrir sjá það ekki, þá bara er það bara þeirra vandamál.


en nóg um eurovision og best að snúa sér að hinum kosningunum, þessum þar sem einhverju máli skiptir hver vinnur eða tapar. Reyndar er það nú alltaf svo að daginn eftir virðast allir hafa unnið. Annað hvort er það sigur eða varnarsigur og núna bættist reyndar ný tegund af sigri við, þ.e. að sigra kosningabaráttuna. Skrítið samt að daginn eftir kjördag skuli allt í einu vera hægt að taka mark á og miða við skoðanakannanir sem fyrir sex vikum síðan voru bara ónákvæmar mælingar sem tæki því ekki að ræða. Já, skrítin þessi pólitík. En niðurstaðan eins og hún horfir við mér:

  • Feikn ánægð með mitt fólk. Að bæta við sig þetta miklu verandi með mikið fylgi fyrir og búin að vera í 16 ár í ríkisstjórn ER góður árangur. Með fullri virðingu fyrir árangri VG sem var vissulega glæsilegur þá er fylgisaukning Sjálfstæðisflokksins ekki síður sigur þó að hún hafi ekki verið jafn mikil í prósentum talið, enda væri það aldrei raunhæft miðað við hvað þeir voru með mikið meira fylgi en VG fyrir. Það þarf enginn að segja mér að VG eigi eftir að auka við sig í sama mæli og núna þegar/ef þeir komast upp undir eða yfir 20% fylgi.
  • Hálfvorkenni framsóknarmönnum útreiðina - þ.e öllum nema einum, eða einni öllu heldur. Hins vegar má kannski benda á að ef á að taka upp keppnina um að vinna kosningabaráttuna eru það nú örugglega ekkert síður framsókn en samfylking sem fagnar sigri þar þar sem þeir fengu líka töluvert meira í kosningunum en í skoðanakönnunum.
  • Vonbrigiði kosninganæturinnar voru náttúrulega að samfylkingin skyldi fá þetta mikið af atkvæðum. Veit alveg að þeir töpuðu fylgi og allt það en að mínu mati er eitt prósent atkvæða ofrausn fyrir þau og hvað þá 20-30 eða hvað það nú var sem þau fengu.
  • Staða kvenna í mínu kjördæmi. Hmmmmm, slétt sama skal ég segja ykkur. Það var mikið hamrað á því að kjósa samfylkingu eða framsókn því að þar væru konur í baráttusætum sem yrði bara að koma inn. Hvorug þessara kvenna á að mínu mati nokkuð erindi á þing auk þess sem svona áróður finnst mér alltaf fráhrindandi. Það á ALDREI að kjósa manneskju bara af því að hún er svo heppin/óheppin að vera ekki með typpi og bara það að hvetja fólk til þess er móðgandi við bæði viðkomandi frambjóðendur og kjósendur. Svo má alveg benda samfylkingar- og framsóknarfólki á að það voru konur í næstu sætum við "öruggu sætin" hjá fleiri flokkum en þessum tveimur þannig að ef aðalmálið er að koma að kvenmanni var ekkert rökréttara að hvetja til kosningar á þessum flokkum umfram aðra.
Ég var sem sagt bara býsna sátt með síðustu helgi enda ekki hægt annað þegar maður er í helgarlok kvaddur með fallegu blómi frá ungum manni:).Vikan hefur svo fram að þessu verið í nokkuð góðu samræmi við helgina, fyrir utan helvítis svínaerfðaefnið sem neitar að haga sér eins og það á að gera. Við Magga erum að verða sérfræðingar í að hantera DNA og gera klárt fyrir greiningu en árangurinn lætur á sér standa. Kannski rétt að taka það fram að vandamálið er samt ekki að við gerum þetta vitlaust því að hluti af sýnunum gefur alltaf fullkomna niðurstöðu. Er það þá ekki bara nóg gæti einhver spurt, hægt að nota bara þau sem virka? Jú, maður gæti haldið það en það eru bara alltaf sömu svínin sem klikka - þau heilbrigðu en þau sjúku eru í lagi sem gerir mjög erfitt og reyndar ómögulegt að bera saman heilbrigð og sjúk sem var jú markmiðið með þessu öllu saman. En þetta hlýtur nú að reddast allt saman fyrir rest.

Skapið versnaði hins vegar all verulega í dag þegar það fréttist að það séu allar líkur á að samfylkingin komist í stjórn þetta kjörtímabilið. Vil ekki, vil ekki vil ekki. Spurning um að vera ekkert að hafa fyrir því að flytja heim aftur næstu fjögur árin. Hefði frekar viljað sjá Íslandshreyfinguna í stjórn en þetta he****i. Hafði samt lúmskt gaman af því að fylgjast með ISG berjast við að bakka með allt sem hún hefur sagt eða gefið í skyn um Sjálfstæðisflokkinn og veru hans í stjórnarráðinu undanfarin fjögur ár. Reyndar hjálpar það henni núna að hún talar aldrei hreint út heldur gefur hlutina í skyn og er með dylgjur og ver sig svo með því að hún hafi nú ekki sagt hlutina svona eða hinsegin eða ekki meint þá eins og allir hafa skilið þá. Alla vega þá er ég þessa stundina enn súrari en ég var þegar ég skrifaði síðustu færslu fyrir réttri viku síðan.

Reyndar er fleira sem spilar inn í þessi súrheit og veldur versnandi andlegu ástandi og almennri líðan sem er synd því að andlega hliðin hefur verið óvenju góð undanfarnar vikur. Ætla svo sem ekki að fara nánar út í það í bili.

Það sem helst bjargar geðheilsunni núna er flugmiðinn sem ég ætla að fara að kaupa mér á eftir og svo myndirnar sem Sigríður sendir mér svo samviskusamlega.
Hér eru tvö dæmi:

Annars vegar fyrsta botnótta lambið sem fæðist í Víðidalstungu alla vega frá því að ég fer að muna eftir mér. Verst að það skuli vera svona vanskapað...

Hins vegar litla ljóta flókatryppið mitt, fyrsta folaldið sem fæddist í Víðidalstungu í sjálfsagt ein fjörutíu ár. Hún virðist ætla að verða alveg ósköp líkt mömmu sinni í útliti og vonandi þá bara í öðrum eiginleikum líka. Rifjast upp fyrir mér núna að fyrir tíu mánuðum síðan síðan sagði ég að líklega yrði hún móvindótt eins og pabbi sinn en eins og glöggt má sjá er hún löngu hætt við það. Alla vega langsætust þrátt fyrir að vera móbrún lítil og ljót, stuttfætt og kviðmikil.

Kominn háttatími
kveðja
Sveitalubbinn, ennþá súr í Köben


Efnisorð: , , ,

fimmtudagur, maí 10, 2007

snökt snökt

Þetta var súrt þó það sé svo sem ekki hægt að segja að niðurstaðan hafi komið verulega á óvart. Skrítið hvað maður missir sig í alltaf í einhverja óheyrilega bjartsýni í kringum þessa keppni og vonbrigðin verða alltaf jafn mikil þó maður viti niðurstöðuna í raun fyrirfram. Heimsku Evrópubúar sem kunna ekki gott að meta og þetta segi ég ekki bara af því að Eiríkur komst ekki áfram. Nokkur þrælfín lög sem einnig sátu eftir og mörg afspyrnu leiðinleg sem komust áfram. Var sátt með þrjú af þessum tíu og það voru reyndar að mínu mati bestu lögin í keppninni - auðvitað fyrir utan Eirík. Hin sem komust áfram eru drasl.


Eiríkur er nú samt alltaf lang lang laaaaaang flottastur og missionið er ennþá að verða svona töff í leðurbuxunum mínum þegar ég næ þessum aldri:)



"Dead sexy" eins og alltaf og stóð sig frábærlega enda alveg snilldar góður söngvari og heldur áfram að vera uppáhalds hjá mér eins og hann er búinn að vera síðustu tvo áratugina eða svo.

Nú skora ég bara á fólk að kjósa annað hvort Svía, Finna eða Ungverja á laugardaginn, allt þrælfín lög og flytjendur og eiga það alveg skilið að vinna (var það ekki annars Ungverjaland sem var með blússöngkonuna með ferðatöskuna?).
Hvað hinar kosningarnar varðar þá skipti ég mér ekki af því hvað þið kjósið þar, bara ef þið kjósið, það er grundvallaratriði. Þeir sem af einhverjum undarlegum ástæðum ætla sér að kjósa samfylkinguna mega samt gjarnan spara sér ferðina á kjörstað.
Best að fara að reyna að sofa úr sér geðvonskuna. Þarf víst að mæta á rannsóknarstofuna í fyrramálið. Þar bíða nokkur DNA sýni sem eftir því að verða greind alveg niður í öreindir (eða svo gott sem) og ein 118 sýni því til viðbótar sem eiga að fara í einhverja aðra meðferð sem ég kann ekki nein skil á ennþá. Verð vonandi komin með það á hreint fyrir 18. júní en þá þarf ég víst að skila skýrslu um herlegheitin.

Kveðja
Sveitalubbinn, súr í Kaupmannahöfn!!

mánudagur, maí 07, 2007

Þessi tækni...

... nú á tímum getur verið varasöm. Alls staðar leynist myndatökubúnaður, gjarnan dulbúinn sem tæki til einhverra allt annarra nota þannig að ómögulegt er að forðast hann. Með einni lítilli fingurhreyfingu getur afraksturinn svo verið kominn landa- og heimsálfa á milli á sekúndubroti. Maður er hvergi öruggur.....


Myndin sem fylgir hér með var reyndar tekin fyrir töluvert mörgum sekúndubrotum síðan og er bara búin að ferðast milli landa en ekki heimsálfa. Hún var hins vegar vissulega tekin á stafræna myndavél, dulbúna sem Nokia 5140i farsíma, og því ómögulegt fyrir fórnarlambið að vera viðbúið myndatökunni eða forða sér.

Að dagurinn í dag er valinn til birtingar á sér hins vegar einkum þá skýringu að fórnarlambið fagnar afmælisdegi sínum í dag, vonandi þó í betra veðri en var á fæðingardeginum sjálfum fyrir 64 árum síðan. Önnur líkleg skýring er sú að ritarinn nennir ekki að lesa sameindaerfðafræði og finnur sér því flest annað til dundurs.






Myndin var tekin í Kaupmannahöfn fyrir tæpum tveimur mánuðum síðan og ég reikna fastlega með því að flest ykkar kannist við manninn og þekkið hans skoðanir á ýmsum málefnum. Þrátt fyrir takmörkuð myndgæði úr Nokia 5140i má sjá, ef vel er að gáð, að í glasinu er gullinn vökvi og á glasið er stimplað velþekkt vörumerki, grænt að lit...
Já, það getur greinilega ýmislegt gerst þegar fólk er sloppið út fyrir sjón(auka)svið nágrannanna í Víðidalnum:)
En um þessa mynd verður ekki rætt nánar. What happens in Köben stays in Köben (eða svoleiðis, hnjehnjehnjehnje).


Fórnarlambið fær hins vegar heimsins mestu og bestu afmæliskveðjur og verður, sem sárabót fyrir myndbirtinguna, knúsaður vel og lengi eftir 47 daga eða svo (ekki það að neinn sé að telja svo sem:)


Annars bara allt meinhægt úr Kaupinhafn. Búin að kjósa og atkvæðið lagt af stað í Borgarfjörðinn svo það verður ekki aftur snúið með það og vonandi hætti ég þá að fá helvítis samfylkingarbréfin sem íslendingafélagið er að miðla um póstlistana með reglulegu millibili. Kólnandi veðurfar (eiginlega frekar sátt með það) með rigningu úr heiðskíru lofti, a la Ísland, og manndrápshagléli. Heppin ég að vera ekki úti að skokka þegar sú demba kom... Verst við þetta veðurfar er að ég er skíthrædd um að því eigi eftir að fylgja þrumur og eldingar í kvöld en vonum bara það besta.


Nóg í bili, ætla að snúa mér að lestrinum þar til um níuleitið í kvöld þegar ég fer að gæða mér á íslenska heimareykta hangikjetinu mínu meðan ég horfi á fréttirnar. Vonandi verður eitthvað annað en kosningaumfjöllun í þeim, nenni ekki meiru af svoleiðis. Kannski maður hæti bara að horfa á fréttirnar, neeeii, ekki alveg að sjá það gerast.
Mætti að mínu áliti alveg taka upp frönsku aðferðina með að gefa kjósendum frið frá skoðanakönnunum og áróðri einhvern ákveðinn tíma fyrir kosningar og leyfa þeim að gera upp hug sinn í friði. Bara hafa þennan tíma töluvert lengri en sólarhringinn eina sem Frakkarnir fá, ein eða tvær vikur væri hæfilegur tími og jafnframt ætti ekki að láta umfjöllunina og kannanirnar byrja fyrr en frestur til að skila inn listum er runninn út. Fólk á að kjósa út frá mönnum og málefnum framboðanna en ekki út frá líkum á hinu eða þessu stjórnarsamstarfinu miðað við hina eða þessa niðurstöðu.

Sveitalubbinn biður að heilsa í bili

(ps. ef þið sjáið prentvillur/stafsetningarvillur í þessu ekkert vera að benda á það, er búin að marglesa þennan teksta yfir og finn alltaf einhverjar nýjar villur og núna er ég hætt)

Efnisorð: , ,

föstudagur, maí 04, 2007

Heiðursborgarinn

í Víðidalstungu þessa dagana er (og Þórunn, þessi færsla er bara um sauðfé þannig að þú getur hætt núna) ...

...ær númer 01-571 sem af einhverjum undarlegum ástæðum hefur aldrei fengið nafn þrátt fyrir að eiga það svo sannarlega skilið.
Þetta er sem sagt sex vetra Húnsdóttir (frá Hesti) sem verður í haust ef öll lömbin skila sér búin að skila okkur einum 18 lömbum til nytja - og á vonandi eitt-tvö ár eftir enn.
Hún var tvílembd sem gemlingur hefur ef mig misminnir ekki því meira (er ekki með bókhaldið með mér hérna úti) verið þrílembd síðan, þar til nú þegar það komu fjögur. Alltaf hefur hún gengið með öll lömbin og skilað þeim heilum og prýðilega þroskuðum að hausti. Í fyrra villtist reyndar eitt undan snemma sumars en það kom ekki að sök þar sem það var prýðilega slátrunarhæft að hausti. Eitt árið reiknaðist okkur til að ef öllum lömbunum hefði verið slátrað og öll verið með sömu kjötprósentu og það sem var slátrað hefðu afurðirnar verið ríflega 50 kílóa fall og það er nú bara býsna gott á okkar mælikvarða alla vega. Ekki þarf heldur að kvarta yfir flokkuninni, yfirleitt R eða U hjá þeim fáu lömbum sem er slátrað og hin mælast alveg þokkalega. Eins og gefur að skilja er hún að sjálfsögðu alltaf sædd ef tækifæri gefst og við vorum einmitt svo heppin þetta árið að hún var að ganga á sæðingadegi og eru fjórlembingarnir undan Ljúf frá Ytri Skógum. Eitt lambið var reyndar vanið undan og hún gengur því með þrjú eins og hún er vön.
Hún virðist ætla að skila frjóseminni prýðilega til dætranna (hef þó ekki gert nákvæma úttekt á því enn) og svo verður bara spennandi að sjá hvernig sonardæturnar standa sig.
Svo er þetta líka lang lang langfallegasta kindin í húsunu. Stór og langvaxin, reyndar ekki sérstaklega lágfætt og alveg sérlega vel og fallega hyrnt. Takið svo sérstaklega eftir "ertu ekki örugglega að koma til að gefa mér nammi" svipnum á henni á myndinni.(held við séum andlega skyldar) hún veit alveg að hún er best og fær það sem hún vill þegar hún vill.
Þegar þær verða allar farnar að skila afurðamagni á borð við þessa verð ég sátt sérstaklega ef flokkunin yrði örlítið betri en hún gefur. Held samt að maður yrði kannski nett geðveikur í sauðburði með 300 fjórlembur og tæplega 90 tvílembda gemlinga....
En, best að fara að einbeita sér að líftækninni, þarf að læra hvernig ég get nýtt tæknina til að flýta fyrir því að ná þessu markmiði...
Kveðja
Sveitalubbinn, staðsettur í Kaupmannahöfn líkamlega séð en þið getið líklega giskað á hvar hugurinn er
P.s. Helgi ég er búin að svara kommentinu þínu hérna fyrir neðan. Ákvað að svara bara í kommenti, nennti ekki að spandera einni færslu enn á þessa vitlausu ályktun

Efnisorð: , ,