fimmtudagur, mars 22, 2007

landbrugsavisen

....virkar fínt þegar maður er andlaus og nennir ekki að blogga neitt sem krefst umhugsunar en langar að blogga samt. Kemur oft eitt og annað þar sem mér finnst skemmtilegt og/eða áhugavert.

Má svo sem vel vera að Bændablaðið hafi verið á undan mér með þessa frétt eins og þessa um nautasæðishárkúrinn en læt hana flakka hérna inn samt.

Vegarollur eru sem sagt víðar vandamál en á Íslandi en þarna virðist vandamálið ekki vera að það sé keyrt á rollurnar heldur að þær klára saltið sem þjónar þá vitanlega ekki lengur hlutverki sínu sem hálkueyðir (eða þannig skilur mín takmarkaða dönskukunnátta þetta).
Frekar fáránlegt dæmi samt því við hverju býst fólk eiginlega þegar það er blandað melassa saman við saltið, þetta er eins og að auglýsa frían bjór einhvers staðar þar sem er ekki er talið æskilegt að Óðinn og Unnsteinn láti sjá sig. Ekki rétta leiðin til að halda skepnum frá vegunum sem sagt.
Hann hefur pottþétt ekki verið með mikla þekkingu á skepnum sá sem fann upp á þessari snilldarlausn...

Ekki það að það þarf svo sem engan melassa til að fé vilji sleikja salt af vegum en hann bætir alla vega ekki ástandið.

Svo finnst mér þessi líka dáldið góð. Engin spurning að mannræfillinn hefði aldrei reynt þetta nema af því að þetta var DANSKT bacon, ekkert annað bacon gæti mögulega verið áhættunnar virði...
Það eru greinilega fleiri en Íslendingar sem eru sannfærðir um að þeir framleiði bestu landbúnaðarvörur í heimi.
Alla vega sat ég í tvo klukkutíma í dag og hlustaði á forsvarsmann danskra kjötframleiðenda útskýra af hverju danskt svínakjöt er betra en svínakjöt annars staðar úr heiminum. Ég ætla svo sem ekkert að taka neina afstöðu til þess hvort það sé rétt. Mér finnst svínakjöt tæplega vera mannamatur fyrr en það er búið að salta það og reykja hæfilega mikið og eftir svo mikla meðhöndlun efast ég um að maður finni mikinn bragðmun eftir því hvar svínið var ræktað.
Það skal þó viðurkennt að það er að mínu mati alltaf plús ef maður getur verið nokkuð viss um að svínið hafi verið alið við sæmilega "svínúðlegar" aðstæður og ekki verið fóðrað með miklu magni af erfðabreyttu fóðri, hormónum né lyfjum þó það komi ekki endilega fram í bragðgæðum. Þannig að ef danskurinn hefur rétt fyrir sér í því að fyrrnefnd atriði séu undir betri control og strangari löggjöf hér en víðast annars staðar þá get ég alveg tekið undir að danskt svínakjöt sé betra en annað.

Ljósi punktur dagsins er að svínafyrirlestrunum í skólanum er lokið í bili en þó gætuð þið enn átt von á bloggi um svínakjöt þar sem ég er enn ekki búin að hafa það af að klára að éta svínshelvítið sem mér áskotnaðist um daginn. Er að safna kjarki í næsta skammt og það gæti vel orðið tilefni til bloggs þegar þar að kemur. Eða alla vega þegar síðasti skammturinn verður kláraður og ég get farið að éta kjöt aftur:)


Segjum þetta gott í bili
sveitalubbinn býður góða nótt úr svínslegum vornæðingnum í Köben

ps. Verð að monta mig af því að ég skilaði skattframtalinu mínu rúmum klukkutíma áður en almennur framtalsfrestur rann út í gærkvöldi og var samt búin að tryggja mér frest til 28. mars. Ekki oft sem það gerist að ég klári eitthvað og skili fyrr en ég nauðsynlega þarf...

Efnisorð: , ,